Fjallabyggð bárust tvö tilboð í ræstingu skólahúsnæðis tónlistarskólans á Siglufirði. Samið verður til næstu þriggja ára um ræstinguna í húsnæðinu. Nokkur munur var á tilboðunum sem bárust.
Tilboðin:
  • Spikk & Span 7.793.565 kr.
  • Guðrún B. Elínardóttir, Rise and shine ehf. kr. 6.900.000 kr.
Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Rise and shine ehf, sem uppfyllir skilyrði verðkönnunarinnar.