Í dag voru tvö flug til Bretlands með easyJet frá Akureyrarflugvelli.
Í morgun var fyrsta ferðin frá Akureyri til Manchester í vetur, en þangað verður flogið tvisvar í viku, á laugardögum og þriðjudögum með easyJet.
Eftir hádegið í dag var svo ferð til London Gatwick.
Icelandair aflýsti flugferðum til og frá Akureyrarflugvelli í dag vegna veðurs. Þá aflýsti Norlandair flugferðum til Grímseyjar og Vopnafjarðar í morgun.
