Kjörstaðir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar eru tveir í Fjallabyggð, annars vegar í Ráðhúsi Fjallabyggðar á Siglufirði og hins vegar í húsnæði Menntaskólans á Tröllaskaga í Ólafsfirði.
Kjörstaðir verða opnir frá kl. 10:00 til kl. 22:00, laugardaginn 29. ágúst.
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst 2026 svara kjósendur einni spurningu með því að merkja X við já eða nei: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“
Samkvæmt kosningalögum er þjóðaratkvæðagreiðslan ráðgefandi. Ríkisstjórnin hefur boðað að hún muni fylgja niðurstöðunni en það er ekki lagaleg skylda.