Tónlistarhátíðin Gæran verður haldin fjórða árið í röð í húsakynnum Loðskinns á Sauðárkróki, dagana 15. til 17. ágúst 2013. Gæran er lítil hátíð sem leggur áherslu á að bjóða upp á vandaða og fjölbreytta tónlist, ný og upprennandi bönd í bland við reyndari tónlistarmenn.
Undanfarin ár hefur mikill fjöldi tónlistarfólks spilað fyrir gesti Gærunnar. Í ár sóttu 62 hljómsveitir um og af þeim hafa 22 verið valdar til að spila á hátíðinni.
Hljómsveitirnar eru í stafrófsröð:
Alchemia, Baggabandið, Bellstop, Blind Bargain, Contalgen Funeral, Dusty Miller, Funk That Shit, Greifarnir, Hymnalaya, Jónas Sig, Kontinuum, Sometime, Stafrænn Hákon, Steinsmiðjan, The Royal Slaves, The Vintage Caravan, The Wicked Strangers, Tilbury, Úlfur Úlfur, Ultra Mega Technobandið Stefán, Valdimar og XXX Rottweiler Hundar.
Dagskrá hátíðarinnar stendur yfir í þrjá daga. Sólóistakvöld er haldið á fimmtudeginum á skemmtistaðnum Mælifelli og tónleikarnir á föstudeginum og laugardeginum eru á aðalsvæði hátíðarinnar. Það er 18 ára aldurstakmark en yngri tónlistarunnendur eru velkomnir í fylgd með foreldri/forráðamanni og fá 12 ára og yngri frítt inn.