Tónlistarbingó með Landabandinu verður haldið á Síldarkaffi í dag, föstudaginn 3. apríl. Húsið opnar kl. 20:00 en Bingó hefst kl. 21:00. Frítt er inn á viðburðinn.
Landabandið sér um stuðið og spilar tónlist úr ólíkum áttum og þá reynir á þátttakendur að þekkja lögin og fylla út bingóspjaldið.
Frábærir vinningar í boði Síldarkaffis og Samkaupa.