Vortónleikar karlakórsins Ernis, sem kemur frá norðanverðum Vestfjörðum, verða í Menningarhúsinu Tjarnarborg á Ólafsfirði, laugardaginn 4. maí kl. 17. Efnisskráin er öll eftir vestfirsk tónskáld, s.s. Jón Ásgeirsson, Jón Jónsson frá Hvanná, Jónas Tómasson – Sigurð Þórðarson, Sigvalda Kaldalóns, Vilberg Vilbergsson og Magnús K. Hávarðsson.

Aðgangseyrir er kr. 2500.- og verður posi á staðnum. Þess má geta, að einn góður Ólafsfirðingur syngur með kórnum, Viðar Konráðsson, tannlæknir á Ísafirði.