Tindastóll og Þróttur Vogum mættust á Sauðárkróksvelli í gær í Fótbolta-net  bikarnum, sem er bikarkeppni neðri deildarliða.  Þróttur leikur í 2. deild karla

Tindastóll átti drauma byrjun og tóku forystuna strax á 5. mínútu þegar Svetislav Milosevic skoraði,en hann er á fyrsta tímabili með liðinu og hefur átt gott tímabil og skorað 9 mörk í 15 leikjum.

Staðan var 1-0 í hálf leik fyrir heimamenn, en dómarinn veifaði gula spjaldinu nokkuð í leiknum og voru nokkrir á hættusvæði í síðari hálfleik.

Gestirnir gerðu tvöfalda skiptingu á 59. mínútu í von um að komast inn í leikinn. Á 64. mínutu jafnaði Þróttur leikinn.

Tindastóll var fljótur að svara og skoraði Jóhann Daði Gíslason á 66. mínútu og var staðan þá 2-1.

Arnar Ólafsson gerði þriðja mark Stólanna á 79. mínútu, staðan orðin 3-1.

Gestirnir minnkuðu muninn á 84. mínútu og hleyptu spennu í leikinn í stöðunni 3-2.

Tindastóll hélt út og var langur uppbótartími í leiknum. Lokatölur 3-2 og eru Stólarnir komnir í 8 liða úrslit Fótbolta-net bikarsins.