Til stóð að opna Skíðasvæðið í Tindaöxl í Ólafsfirði í dag, en vegna veðurs verður því miður lokað. Á svæðinu eru 12 m/s og 23 m/s í hviðum. Hægari vindur var í nótt en jókst með morgninum.

Óformleg opnun var í gær og náðu heimamenn að mæta í brekkuna.