Þann 4. janúar 2024 verður besta og efnilegasta íþróttafólk Fjallabyggðar árið 2023 verðlaunað fyrir afrek sín og ástundun.
Athöfnin fer fram í menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði, fimmtudaginn 4. janúar kl. 20:00 og sem fyrr eru það Kiwanisklúbburinn Skjöldur og Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar sem standa saman að valinu og framkvæmd athafnarinnar.
Tilnefningar bárust frá 9 af 14 aðildarfélögum UÍF en ekki eru öll félög með starfsemi fyrir þá aldurflokka sem valið nær til.
Alls eru 37 einstaklingar tilnefndir í hinum ýmsu greinum.
Hér eru nöfn þeirra í stafrófsröð:
Agnar Óli Grétarsson, Alex Helgi Óskarsson, Árni Helgason, Ásdís Ýr Kristinsdóttir, Berglind Gylfadóttir, Dagný Finnsdóttir, Eiríkur Hrafn Baldvinsson, Eva María Merenda, Grétar Áki Bergsson, Haraldur Helgi Hjaltason, Haukur Rúnarsson, Helgi Reynir Árnason, Hilmar Símonarson, Hólmfríður Dögg Magnúsdóttir, Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir, Jordan Damachoua, Jón Frímann Kjartansson, Laufey Petra Þorgeisdóttir, Margrét Hlín Kristjánsdóttir, Marta Kulesza, Matthías Kristinsson, Mundína Ósk Þorgeirsdóttir, Sara Sigurbjörnsdóttir, Sebastian Amor Óskarsson, Sigurbjörn Þorgeirsson, Sigurjón Sigtryggsson, Sigurlaug Sara Kristjánsdóttir, Silja Rún Þorvaldsdóttir, Steingrímur Árni Jónsson, Svava Rós Kristófersdóttir, Sveinn Þór Kjartansson, Sævar Þór Fylkisson, Tinna Hjaltadóttir, Tómas Ingi Ragnarsson, Unnsteinn Sturluson, Viktor Smári Elínarson og Viktoría Ösp Jóhannesdóttir Færset.
Framkvæmdaaðilar hátíðarinnar vonast til að allir tilnefndir mæti sem og sem flest annað áhugafólk um íþróttalífið í Fjallabyggð.