Tilkynning frá sveitarfélaginu Fjallabyggð vegna matarvagna yfir verslunnarmannahelgina.
Fjallabyggð vill árétta að staðsetning fyrir matarvagna er við Hafnarvog.
Þeir aðilar sem þar starfa yfir verslunarmannahelgina 2026 hafa fengið stöðuleyfi frá sveitarfélaginu í samræmi við gildandi reglur.
Við biðjum gesti og íbúa að virða þessa skipan og sýna öllum sem koma að starfseminni gagnkvæma kurteisi og tillitssemi.
Við þökkum fyrir góðan skilning og óskum öllum ánægjulegs Síldarævintýris.