Tígulkvartettinn heldur áfram tónleikaferð sinni um Norðurland um helgina.  Tónleikar verða í Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 9. mars kl. 17. Tígulkvartettinn skipa Zsuzsanna Bitay fiðluleikari, Tomasz Kolosowski fiðluleikari, Pawel Kolosowski víóluleikari og Ásdís Arnardóttir sellóleikari.

Þau munu leika strengjakvartetta nr. 2 í G dúr eftir Mozart og nr. 1 í F dúr eftir Beethoven. Einnig verður leikið Lundúnatríó eftir Haydn. Gestur á tónleikunum er Petrea Óskarsdóttir þverflautuleikari.

Miðaverð kr. 2.500,- Fyrir eldri borgara kr. 1.500,- og ókeypis fyrir námsfólk.

Menningarráð Eyþings styrkir tónleikana.

Tígulkvartettinn