Fá mál komu inn á borð lögreglunnar á Norðurlandi eystra í gærkvöldi og nótt. Þrjú tilfelli komu upp þar sem einstaklingar voru aðstoðaðir vegna ölvunarástands.
Tvö tilfelli komu upp þar sem höfð voru afskipti af börnum sökum neyslu áfengis og voru foreldarar og barnavernd upplýst um málin.
Þrjú umferðarlagabrot voru skráð hjá Lögreglunni en ekkert tilfelli kom upp þar sem grunur var um akstur undir áhrifum vímugjafa.
Engin mál komu inn á borð lögreglu vegna óláta eða slagsmála og enginn þurfti að gista í fangageymslu á Akureyri.