Fjallabyggð fékk þrjár umsóknir þegar auglýst var eftir áhugasömum aðilum um að taka að sér rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal á Siglufirði. Fjallabyggð mun útbúa gögn og óska eftir verðtilboðum og rekstrarútfærslum frá þessum þremur aðilum áður en samið verður við nýjan rekstraraðila.
Umsækjendur eru:
- EB ehf – Einar Hjörleifsson, Dalvík
- Fjallgarðar Íslands ehf – Pálmi Blængsson, Fjallabyggð
- Hilmar Símonarson f.h. óstofnaðs félags, Fjallabyggð