Vegna fréttar hér á síðunni í gær kom ábending frá sveitarfélaginu Fjallabyggð. Þar kemur fram að þrír kranar eru notaðir til löndunar á Siglufirði (einn krani er mjög lítill og nýtist illa til löndunar) og eins og fram kemur í bókun er aðeins einn krani í góðu standi, tveir þarfnast viðhalds og verður þeim viðhaldið eins og kostur er. Það eru því þrír löndunarkrana nothæfir á Siglufirði og hafa leyfi vinnueftirlits en samkvæmt úttekt er gerð var á krönunum er ljóst að á næstu misserum þarfnast tveir kranar verulegs viðhalds sem óvíst er hvort að svari kostnaði og því mælist Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar til þess að þeir verði endurnýjaðir í kjölfar þess að nýr krani verði keyptur og þar með bætt við löndunarkrana á Hafnarbryggju.
Þetta er hér með leiðrétt og uppfært.