Þessa dagana eru þrír leikmenn knattspyrnuliðs Tindastóls á reynslu hjá sænska liðinu Örgryte sem leikur í næstefstu deild þar í landi. Leikmennirnir sem um ræðir eru Einar Ísfjörð Sigurpálsson, Jón Gísli Stefánsson og Sigurður Pétur Stefánsson. Þeir munu æfa með U19 ára liði Örgryte, mæta á nokkrar æfingar og spila einn æfingaleik.

Þetta er í gegnum samstarf sem Tindastóll er að byggja upp með Örgryte sem er gamalgróið atvinnumannafélag i Svíþjóð. Samstarf sem verður síðan þróað í sameiningu á næstu árum.

Frá þessu var fyrst greint á vef Tindastóls.