Á hvítasunnudag, 28. maí síðastliðinn, fermdust þrettán glæsileg, siglfirsk ungmenni í Siglufjarðarkirkju. Um tónlistarflutning sáu Rodrigo J. Thomas og Kirkjukór Siglufjarðar, en fermingarbörnin tóku undir í laginu “Oh, happy day” í lokin og gerðu það vel.
Þau eru í stafrófsröð: Alexandra Ísold Guðmundsdóttir, Anton Elías Viðarsson, Benóní Hreinn Bárðarson, Eiríkur Hrafn Baldvinsson, Emma Hrólfdís Hrólfsdóttir, Kleopatra Ó. Hallgrímsdóttir, Margrét Hlín Kristjánsdóttir, Sindri Hafþór Halldórsson, Steingrímur Árni Jónsson, Tinna Hjaltadóttir, Tómas Ingi Ragnarsson, Tristan Nökkvi Magnússon og Þorsteinn Birgis Valdimarsson.
Myndin var tekin skömmu fyrir athöfn á kirkjuloftinu.
Þetta kom fram á síðu kirkjunnar á samfélagsmiðlum.