Í júlí mun listmálarinn Þorri Hringsson sýna verk sín í salnum í Bergi Menningarhúsi á Dalvík. Flest listaverkanna eru olíumyndir ásamt teikningum.  Myndirnar eru landslagsmyndir sem Þorri hefur unnið að síðustu 12 mánuði.

Þorri Hringsson fæddist í Reykjavík árið 1966 en á ættir sínar að rekja í Aðaldal. Þorri útskrifaðist frá Myndlista- og handliðaskóla Íslands árið 1989 og árið 1991 frá Jan van Eyck Akademie í Maastricht í Hollandi.  Þorri hefur haldið margar sýningar hér á landi og í Hollandi ásamt því að hafa tekið þátt í samsýningum.

Sunnudaginn 7. júlí verður opið í Bergi frá kl. 14:00-17:00.