Rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson heimsótti nemendur 10. bekkjar í Grunnskóla Fjallabyggðar byrjun síðustu viku. Hann var með fyrirlesturinn Verum ástfangin af lífinu. Þessi heimsókn Þorgríms er árleg en hann heimsækir flesta skóla landsins og ræðir við nemendur á jákvæðum og hvetjandi nótum um lífið og tilveruna.

Nemendur Grunnskóla Fjallabyggðar tóku vel á móti Þorgrími og voru ánægðir með heimsóknina.