Ársþing Ungmenna- og Íþróttasambands Fjallabyggðar (UÍF) var haldið á Siglufirði þriðjudaginn 21. maí síðastliðinn. Góð mæting var á þingið, alls voru 27 þingfulltrúar mættir af 34 mögulegum.  Þingforseti var Sigurpáll Gunnarsson og stýrði hann þinginu af röggsemi.

Þórarinn Hannesson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formannssetu og var Jónína Björnsdóttir kosin formaður í hans stað. Tillaga um breytingar á reglugerð um Verkefnasjóð UÍF var samþykkt á þinginu eftir talsverðar umræður.  ÍSÍ veitti Þórarni Hannessyni fráfarandi formanni Silfurmerki ÍSÍ á þinginu en Þórarinn hefur auk formannsembættisins undanfarin þrjú ár verið mjög virkur í íþróttastarfinu innan UÍF og aðildarfélaga þess til fjölda ára. Fulltrúi ÍSÍ á þinginu var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri.

Image may contain: 2 people, people smiling, people standing
Á myndinni eru Viðar Sigurjónsson og Þórarinn Hannesson.