Þórarinn Hannesson frá Ungmennafélaginu Glóa á Siglufirði setti nýtt met þegar hann kastaði spjóti um 34 metra á Akureyrarmóti Ungmennafélags Akureyrar. Er það besti árangur Íslendings í flokki 60-64 ára með 800 gramma spjóti.

Þórarinn keppti einnig í kringlukasti og kastaði 24 metra þar með 2 kg kringlu. Er þetta kast það 6. besta í hans aldursflokki.

Glæsilegur árangur hjá Þórarni, og ekki ólíklegt að hann haldi áfram að taka þátt í frjálsíþróttamótum á næstu misserum.

 

Þetta kom fram í tilkynningu á samfélagsmiðli Umf. Glóa.