Þórarinn Hannesson áritar nýja bók sína Siglufjörður – Vísur og myndir, miðvikudaginn 12. ágúst milli kl. 12:00-14:00 við Siglósport við Aðalgötuna á Siglufirði.
Bókin inniheldur rúmlega 30 myndir af Siglufirði, sem Þórarinn hefur tekið á undanförnum árum, og jafn margar vísur.
Bókin kostar 3.500 kr. beint frá höfundi og fæst hjá Siglósport og á Ljóðasetrinu á Siglufirði.
Fljótlega verður bókin einnig til sölu í verslunum Eymundsson á Akureyri og í Reykjavík.