Þjóðlagahátíðin á Siglufirði verður haldin í 18. sinn dagana 5.-9. júlí. Hátíðin hefur aldrei verið jafn fjölbreytt og í ár.
Á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði verður flutt tónlist frá fjórum heimsálfum í öllum regnbogans litum. Leikin verður tónlist frá Afríku, Suður-Ameríku, Kanada, Norðurlöndunum, Bretlandseyjum, Rússlandi og Balkanskaga auk íslenskrar tónlistar. Mamady Sano frá Gíneu kennir dansa og trumbuslátt frá Vestur-Afríku og kennd verður írsk þjóðlagatónlist. Þá verður sjalaprjón kennt, sérstakt barnanámseið verður haldið og í Þjóðlagaakademíunni er bæði kennd íslensk og erlend þjóðlagatónlist sem og þjóðdansar.
Dagskrá Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði hefur aldrei verið jafn fjölbreytt og í ár. Í fyrsta sinn koma listamenn frá Afríku og halda bæði tónleika og námskeið á hátíðinni. Mamady Sano er heimsfrægur tónlistarmaður frá Gíneu í Vestur-Afríku. Hann kemur með flokk sinn Barakan Dance and Drums. Með honum í för er Sandra Sano Erlingsdóttir, en þau hafa bæði kennt dansa og trumbuslátt frá Gíneu hér á landi og erlendis. Frá Kanada kemur margverðlaunað þjóðlagadúó Sophie and Fiachra. Þau eru af írsku bergi brotin og leika þjóðlagatónlist sem írskir innflytjendur báru með sér vestur um haf. Sophie og Fiachra munu einnig halda námskeið í írskri þjóðlagatónlist á hátíðinni.
Svanlaug Jóhannsdóttir hefur vakið mikla athygli fyrir frábæran flutning á tangósöngvum frá Argentínu. Hún kemur fram á hátíðinni með hljómsveit sinni og flytur tangóa eftir Piazolla og fleiri afburða argentísk tónskáld. Á meðal annarra listamanna má nefna Ragnheiði Gröndal og Guðmund Pétursson gítarleikara sem flytja íslenska og enska ástarsöngva ásamt Helois Pilkington söngkonu og fiðluleikaranum Gerry Diver. Finnska þjóðlagatríóið Hyvä Trio leikur frumsamda þjóðlagaskotna tónlist, sænska söngkonan Malin Gunnarsson kemur fram og sænska Krilja-tríóið flytur rússneska sígaunatónlist. Þá leikur þjóðlagasveitin Trato frá Síle þjóðlög frá Suður-Ameríku.
Íslenskir tónlistarhópar láta ekki sitt eftir liggja á Þjóðlagahátíðinni. Svafa Þórhallsdóttir syngur sönglög eftir Grieg og Tinna Árnadóttir lög austfirskra tónskálda á borð við Inga T og Jón Múla í nýstárlegum útsetningum, harmónikutríóið Í-tríó heldur bæði tónleika og leikur fyrir dansi á sérstökum harmonikudansleik, kvennakórinn Vasele Bebe syngur kröftug lög af Balkanskaga, Kalmanskórinn syngur Ljóð og lög úr safni Þórðar Kristleifssonar og Björg Brjánsdóttir frumflytur hér á landi nýlegan flautukonsert í þjóðlagakenndum stíl eftir pólska tónskáldið Marcin Blazewicz ásamt Sinfóníuhljómsveit unga fólksins.
Að auki verður boðið upp á magnaða innsetningu Vin í eyðimörkinni (Keitaat / Oases) í tanki Síldarminjasafnsins á Siglufirði þar sem finnska þjóðlagasöngkonan Amanda Kauranne og finnski vídeólistamaðurinn Mikko H. Haapoja flytja tónlist í takt við náttúruhljóð og náttúrumyndir sem þau hafa safnað í hinu forna finnska Kirjálahéraði, við Helsinki og á Siglufirði. Gestum gefst tækifæri á að spila og syngja með og taka þátt í innsetningunni, allt eftir því hvað sýningin blæs þeim í brjóst. Vin í eyðimörkinni eða Keitaat / Oases stendur alla hátíðina.
Listrænn stjórnandi Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði er Gunnsteinn Ólafsson og framkvæmdastjóri er Monika Dís Árnadóttir.