Halldór Ingvar Guðmundsson hefur ákveðið að hætta sem þjálfari Knattspyrnufélags Fjallabyggðar en þetta kynnti hann stjórn félagsins á allra síðustu dögum.

Daniel Kristiansen leikmaður KF tekur við keflinu, en hann er með mikla menntun í þjálfun og er með UEFA A gráðu. Daniel er fæddur árið 1995 og hefur leikið með KF frá árinu 2022 sem miðjumaður. Hann á 54 leiki fyrir liðið og hefur skoraði 1 mark.  Daniel er danskur og kom til KF frá Esbjerg.

Það verður áhugavert að sjá hvort hann verði einnig spilandi þjálfari, en það kom ekki fram í tilkynningu.

Þá er spurning hvaða leikmenn verða með á næsta ár í 3. deildinni, en nokkrir leikmenn eru á nálgast fertugt.

Þá er spurning hvort Dóri verið til taks í markinu, en það er þó ólíklegt.