Frábær dagskrá heldur áfram í dag á Síldarævintýrinu á Siglufirði. Í gær fór hitinn ekki yfir 11 gráður samkvæmt mælingum veðurstofunnar á Siglufirði, og kom smá súld síðdegis. Spáð er björtu veðri á sunnudag á mánudag. Nokkrar aðsendar myndir fylgja fréttinni sem teknar voru í gærkvöldi.
Í dag, laugardaginn 1. ágúst hefst dagskrá kl. 11:00 á Ráðhústorginu á Siglufirði þegar Latabæjarhlaupið með íþróttaálfinum verður ræst. Hoppukastalar verða í íþróttahúsinu og andlitsmálun. Hoppland verður við höfnina þar sem hægt verður að stökkva í sjóinn.
Lifandi tónlist verður á Aðalgötunni frá kl. 14-16. Hjá Segli 67 brugghúsinu verður þrautabraut fyrir börn, fornbílasýning og Bjórleikarnir. Lifandi tónlist verður þar einnig síðdegis.
Söltun verður á Síldarminjasafninu kl. 15:00 ásamt bryggjuballi. Dagskrá verður á Ljóðasetrinu kl. 16:00.
Skrúðganga verður að brennu kl.19:30 frá Ráðhústorgi og verður kveikt á brennu á Suðurtanga kl. 19:40.
Stórtónleikar Ástarpunganna ásamt Jónsa hefjast kl. 20:30 á Ráðhústorginu.
Þá verður Músíkbingó á Kaffi Rauðku og Danni og Kiddi spila á Aðalbakaríinu.
Frítt er í sund í Ólafsfirði fyrir ungmenni yngri en 18 ára í dag.




