Miðaldadagar verða haldnir á Gásum um helgina og er dagskráin þétt bæði á laugardag og sunnudag.

Báða daga hefjast herlegheitin með opnun kaupstaðarins kl. 11:00 en bæjarhliðunum verður lokað aftur kl. 16:00.

Hér er það sem hæst ber um helgina og gildir fyrir bæði laugardag og sunnudag:

  • 11.00: Kaupstaður opnar.
  • 11.00-16.00: Kaupmenn selja varning sinn og vinna að handverki.
  • 12.00-16.00: Þorir þú á hestbak? Teymt undir börnum.
  • 11.00-16.00: Getur þú skotið af boga? Hægt að spreyta sig í bogfimi. 4 örvar á 1.000 krónur.
  • 12.00: Lifandi leiðsögn um fornleifasvæðið. Leiðsögumaður: Níels Ómarsson.
  • 13.00: Tóvinna á miðöldum – erindi.
  • 14.00: Skylmingar og slagsmál – erindi.
  • 15.00: Leiðsögn um fornleifasvæðið. Leiðsögumaður: Níels Ómarsson.
  • 16.00: Kaupstaður lokar.

Annað sem um er að vera er meðal annars eldsmíði, jurtalitun, knattleikur, vattarsaumur, framlag seiðkonu, hringdans, matargerð, leikþáttur, bandvefnaður, tálgun og miðaldatónlist.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.