Mikill vindur og gríðarlegir vindstrengir hafa verið á Siglufirði í gær og nótt og viðbúið að svo verði áfram, fram eftir degi og til kvölds. Í kvöld skemmdist hús við Aðalgötu í einni vindhviðunni þegar þak hússins fór af að stórum hluta með þeim afleiðingum að brak dreifðist um stórt svæði.
Tjón hlaust á nærliggjandi húsum og mannvirkjum og þurfti meðal annars að rýma eitt hús.
Vegna þess er umferð um Aðalgötu á Siglufirði, frá Vetrarbraut, lokað fyrir umferð þar til búið er að tryggja svæðið.
Einnig er lokað fyrir umferð um bifreiðastæði við skrifstofu Ramma á hafnarsvæðinu. Opnað verður aftur fyrir umferð um leið og svæðið verður tryggt.
Öll tiltæk björgunartæki björgunarsveita á svæðinu, slökkviliðs og lögreglu hafa verið notuð við lokanir í nótt. Þá hafa björgunarsveitarmenn verið á ferðinni um bæinn til að lágmarka foktjón á öðrum stöðum.