Fjölmenningarhátíð í Fjallabyggð verður haldin í Brimsölum í Ólafsfirði um helgina. Sýningaropnun verður föstudaginn 2. október kl. 17:00-19:00. Sýning á ljósmyndum og viðtölum af fólki af erlendum uppruna sem býr og starfar í Fjallabyggð.
Laugardaginn 3. október kl. 13–17 verður fjölmenningarleg samvera með sameiginlegu pálínu kaffiboð, tónlist og frásögnum.
Sýningin verður opin allar helgar í október í Brimsölum.