Svissneskur ljósmyndari, Walter Huber, sýnir í Saga Fotografica á Siglufirði á laugardag 1. ágúst og sunnudaginn 2. ágúst.  Myndirnar sem Huber sýnir eru allar teknar á Íslandi.  Myndirnar verða sýndar á skjá og eru tvær sýningar hvorn dag; fyrst klukkan 13-14 og aftur 15-16.

Huber vann fyrstu verðlaun í samkeppni svissneskra náttúruljósmyndara á þessu ári og var jafnframt valinn ljósmyndari ársins þar á bæ. Verðlaunamyndina, sem sjá má hér að ofan, tók hann úr þyrlu austan við Mýrdalsjökul.
Walter og Ruth eiginkona hans, sem eru tæplega sjötug, eru sannkallaðir Íslandsvinir; hafa sótt landið heim ellefu sinnum frá aldamótum, dvalið hér samtals í 19 mánuði á þeim tíma og Walter verið iðinn með ljósmyndavélina.

Saga Fotografica er á Vetrarbraut 17 og þar verður opið frá kl. 13 til 16 um verslunarmannahelgina.

11707623_1168232466526430_4165901360814207522_n