Sunnudaginn 5. júní kl. 15.30 verður sunnudagskaffi með skapandi fólki í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Gunnlaugur Guðleifsson mun flytja erindi um ljósmyndaáhuga sinn og þau störf sem hann hefur unnið á þeim vettvangi.  Gunnlaugur er búsettur á Siglufirði, hann starfar sem féhirðir hjá Arion banka á Siglufirði.

Gunnlaugur hafði snemma áhuga á ljósmyndun og með starfi sínu sem fréttaljósmyndari fyrir sksiglo.is magnaðist áhuginn svo, að ekki var aftur snúið. Undanfarin ár hefur hann varið töluverðum tíma í tilraunir með ljósmyndavélina að vopni. Hann hefur sýnt afraksturinn í Bláa húsinu hjá Rauðku á Siglufirði. Einnig eru myndir hans til sýnis og sölu í Samkaup á Siglufirði.
Viðfangsefni hans er aðallega birtan, náttúrustemmingar og það sem verður á vegi hans í nærumhverfinu.

Fjallabyggð, Menningarráð Eyþings og Egilssíld styrkja menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.

13335781_1011641355579136_3865057876621238911_n