Vegna framkvæmda í sundlaug Eyjafjarðarsveitar verður hún lokuð frá 11. – 23. ágúst. Skipta á um sundlaugardúk í stóru lauginni og setja upp nýjan heitan pott. Stefnt er að opnun aftur laugardaginn 23. ágúst og þá samkvæmt vetraropnunartíma.
Á meðan lokuninni stendur verður íþróttahús og líkamsrækt opin á milli kl. 8:00 og 15:00 virka daga en lokað um helgar.
Vetraropnun frá 24. ágúst
Mánudaga – fimmtudaga kl. 6:30-8:00 og 14:00-22:00
Föstudaga kl. 6:30-8:00 og 14:00-19:00
Laugardaga og sunnudaga kl. 10:00-19:00