Aðsókn í sundlaugarnar í Skagafirði s.l. sumar var með miklum ágætum framan af sumri þar sem greinilegt var að Íslendingar voru duglegir að heimsækja laugarnar. Sér í lagi var ánægjulegt að sjá fjölgun gesta í laugunum á Sauðárkróki og í Varmahlíð, en metfjöldi gesta sótti sundlaugina í Varmahlíð í sumar. Í lok sumars var fækkun gesta aðeins -2,5% milli ára þar sem langmestu munar um fækkun erlendra gesta.

Sundlaugin á Hofsósi er langvinsælust af ferðamönnum og voru yfir 20.000 gestir þar í sumar á meðan sundlaugargestir í Varmahlíð voru um 12.000. Þá voru um 11.000 sem heimsóttu sundlaugina á Sauðárkróki í sumar.

 

Mynd og heimild: skagafjordur.is