Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja við verkefni sem falla að Sóknaráætlun Norðurlands eystra í þremur flokkum, atvinnulífs, blómlegra byggða og stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) annast umsýslu sjóðsins í landshlutanum og er auglýst einu sinni á ári eftir umsóknum um styrki.
Hvernig verkefni eru styrkhæf?
Veittir eru styrkir úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra í eftirfarandi þremur flokkum:
- Verkefnastyrkir á sviði atvinnulífs
- Verkefnastyrkir á sviði blómlegra byggða
- Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar
Umsóknarfrestur er til 21. október kl. 14:00.