Stór aurskriða féll í Hleiðargarðsfjalli ofan við bæinn Gilsá 2 í Eyjafirði í dag. Búseta er á jörðinni en enginn var í húsinu þegar skriðan féll sem staðnæmdist um 100 metra frá húsinu.

Engan sakaði eftir því sem næst verður komið. Fleiri smærri skriður hafa fallið og heyrast drunur frá skriðusárinu sem er merki um að grjót er enn að falla.

Lögreglan á Norðurlandi eystra er á staðnum og von á sérfræðingi frá Veðurstofu Íslands til að meta aðstæður. Ekki er útilokað að fleiri skriður geti fallið.

Lögreglan á Norðurlandi eystra greindi fyrst frá þessu.

Myndir: Lögreglan á Norðurlandi eystra.