Steinullarmótið í golfi á Hlíðarendavelli
Steinullarmótið í golfi var haldið á Hlíðarendavelli á Sauðárkróki 1. ágúst. Það mættu 28 kylfingar til leiks en mótið er hluti af Norðvesturþrennu sem er mótaröð GSK, GÓS og GSS.
Fyrirkomulag mótsins var punktakeppni án forgjafar í kvenna- og karlaflokki og einn opinn flokkur með forgjöf.
Helstu úrslit í karlaflokki voru:
- 1. sæti Arnar Geir Hjartarson GSS – 34 punktar.
- 2. sæti Jóhann Örn Bjarkason GSS – 26 punktar.
- 3. sæti Guðmundur Ragnarsson GSS – 24 punktar.
Helstu úrslit í kvennaflokki voru:
- 1. Árný Lilja Árnadóttir GSS – 29 punktar.
- 2. Dagbjört Rós Hermundsdóttir GSS- 20 punktar.
- 3. Sigríður Elín Þórðardóttir GSS- 20 punktar.
Helstu úrslit í opnum flokki með forgjöf:
- 1. Árný Lilja Árnadóttir GSS- 39 punktar.
- 2. Arnar Geir Hjartarson GSS- 38 punktar.
- 3. Svanborg Guðjónsdóttir GSS 37 punktar.
- 4. Dagbjört Rós Hermundsdóttir GSS – 37 punktar
- 5. Adolf Hjörvar Berndsen GÓS – 37 punktar
- 6. Reynir Barðdal GSS – 37 punktar.
Jóhann Örn Bjarkason var næstur holu í öðru höggi á 9/18 braut og Jón Jóhannson GÓS var næstur holu eftir upphafshögg á 6/15 braut.
Úrslit frá gss.is.