Skíðafélag Ólafsfjarðar stefnir á að geta framleitt snjó fyrir skíðasvæði félagsins í Tindaöxl. Félagið hefur óskað eftir því að Fjallabyggð tengi vatn inn á svæðið sem hægt verði að nýta í snjóframleiðslu. Skíðafélag Ólafsfjarðar mun ábyrgjast allan kostnað við framleiðsluna og uppbyggingu á kerfinu.