Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson verða með páskatónleika á Kaffi Rauðku á Siglufirði í dag, fimmtudaginn 2. apríl kl. 21:00. Forsölumiðar eru á Sigló hótel og einnig hægt að kaupa miða við dyrnar sem opna kl. 20:00.
Þórir Úlfarsson spilar á píanó með Stebba og Eyfa og taka þeir öll sín þekktustu lög.
Þeir félagar eru svo á Græna hattinum á Akureyri, föstudaginn 3. apríl kl. 21:00.