Höfnin í Ólafsfirði

Búið er að ganga frá samkomulagi um kaup á vinnuframlagi hafnarstarfsmanna Fjallabyggðarhafna vegna afleysingu á bakvakt á höfnum Dalvíkurbyggðar, eða um þriðju hverja helgi til 31. mars 2023. Fjallabyggð brúar þannig bilið fyrir Dalvíkurbyggð, og skapa einnig tekjur fyrir Fjallabyggðarhafnir, en tekur hafnarinnar hafa dregist saman um 30% frá árinu 2019.

Enginn afli hefur borist á land í Ólafsfjarðarhöfn frjá 1. janúar til 23. janúar 2023, en á Siglufirði höfðu verið 12 landanir og 268 tonn á sama tíma.