Starfsfólk og íbúar á hjúkrunarheimilinu Hornbrekku í Ólafsfirði fengu í dag kynningu á brunavörnum, handslökkvitæki og eldvarnarteppi frá Slökkviliði Fjallabyggðar. Kynning var haldin í þremur lotum svo sem flestir gætu mætt á kynninguna.
Einnig var farið yfir gildi rýmingaráætlunar og mikilvægi brunaviðvörunarkerfis.
Þörf umræða skapaðist þar sem rætt var um alla mögulega og ómögulegar aðstæður sem geti skapast.
Starfsfólk fékk einnig að meðhöndla slökkvitæki og endvarnarteppi á kynningunni.
Þetta kom fram á samfélagsmiðlum hjá Slökkviliði Fjallabyggðar í dag ásamt meðfylgjandi myndum.