Þingeyjarsveit leitar að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi í starf slökkviliðsstjóra. Leitað er að einstaklingi sem hefur frumkvæði og aðlögunarhæfni að síbreytilegum aðstæðum og fjölbreyttum verkefnum. Slökkviliðssjóri heyrir beint undir sveitarstjóra. Umsóknarfrestur er til og með 19. mars 2026.
Slökkvilið Þingeyjarsveitar er vel tækjum búið og þar starfar öflugur hópur manna. Í sveitarfélaginu eru tvær slökkvistöðvar á Laugum og í Reykjahlíð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórn og ábyrgð á rekstri slökkviliðsins
- Ábyrgð á faglegri starfssemi, ráðningum, fræðslu og þjálfun slökkviliðsmanna
- Umsjón húsnæðis, tækja og bíla
- Umsjón með almennum brunavörnum og eldvarnareftirliti, úttektir, umsagnir og eftirfylgni
- Stjórn slökkvistarfs og mengunaróhappa á vettvangi
- Áætlanagerð og stefnumótun
- Samskipti við hagsmunaaðila innan og utan sveitarfélagsins
- Önnur verkefni í samráði við sveitarstjóra
Sótt er um á www.mognum.is.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir telma@mognum.is