Starf forstöðumanns vinnuskóla Dalvíkurbyggðar
Laust er starf forstöðumanns vinnuskóla Dalvíkurbyggðar. Um er að ræða starf sem hefur verið í mótun frá sumrinu 2014. Dalvíkurbyggð er fjölmenningarlegt samfélag og þarf viðkomandi að vera góð fyrirmynd, sterkur leiðtogi og hafa áhuga á að vinna með ungmennum. Starfstími er frá 1.maí – 31. ágúst 2016.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar næstkomandi. Hægt er að sækja um á dalvik.is og veitir Gísli Rúnar nánari upplýsingar, gislirunar@dalvikurbyggd.is.