Sr. Hildur Eir Bolladóttir hefur verið ráðin sóknarprestur við Akureyrarkirkju. Sr. Svavar A. Jónsson sem hefur verið sóknarprestur þar síðan árið 1999 lauk störfum sínum við kirkjuna um áramótin.

Sr. Hildur Eir er fædd í Laufási við Eyjafjörð 25. apríl árið 1978. Sr. Hildur þjónaði í barnastarfi Dómkirkjunnar veturinn 2000 en fór fljótlega eftir það að halda utan um sunnudagaskólann í Laugarneskirkju. Þar var hún ráðin æskulýðsfulltrúi árið 2005 og vígðist til prestsþjónustu við sömu kirkju árið 2006. Sr. Hildur var fyrsti formaður ÆSKÞ Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar og skipulagði og stýrði landsmótum í tengslum við það hlutverk. Hún var skipuð prestur við Akureyrarkirkju árið 2010 og hefur starfað þar síðan.

Sambýlismaður sr. Hildar er Kristinn Hreinsson framkvæmdastjóri Rafeyrar og þeirra börn eru Haraldur Bolli, Jónatan Hugi, Ágústa og Arna.