Ferðafélag Siglufjarðar hefur birt sumargöngurnar sem þeir bjóða uppá þetta árið. Hægt er að sjá allar ferðirnar á heimasíðu þeirra hér. Næsta ganga verður þann 21. júní á vegum félagsins.

21. júní, föstudagur. Sólstöðuganga 

Farið með rútu kl. 21:30 frá Ráðhústorgi á Siglufirði. Ekið inn að Mánárdal, gengið inn dalinn, upp í Dalaskarð og út Leirdali. Mögulega verður gengið á Hafnarhyrnuna, 687 m og svo niður í Hvanneyrarskál.  Afar skemmtileg ferð í miðnætursólinni.

  • Kjötsúpa í boði Sparisjóðs Siglufjarðar að lokinni göngu.
  • Verð 1.500 kr. Rúta er innifalin í verðinu.
  • Göngutími 4–5 klst.