Föstudaginn 15. júlí kl. 16.00 verður sögustund fyrir börn á Ljóðasetrinu á Siglufirði. Stundin verður krydduð ljóðalestri í léttum dúr og börnin gera einnig eigin sögu.
Börn á öllum aldri velkomin að hlýða á, taka þátt og njóta.
Kjörbúðin býður upp á hressingu.
Barnamenningarsjóður styrkir barnastarf á Ljóðasetri í sumar.