Tilkynnt var um klukkan hálf eitt í dag að snjóflóð hefði fallið á hóp skíðamanna innarlega í Brimnesdal í Ólafsfirði, nánar tiltekið undir Kistufjalli. Þarna var 7 manna hópur og voru fyrstu frétttir að það væri allavega einn þeirra talsvert slasaður.
Voru björgunarsveitir Landsbjargar frá Siglufirði til Akureyrar ræstar út, lögregla og sjúkraflutningamenn á Tröllaskaga og þá var óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar. Aðgerðastjórn var virkjuð á Akureyri.
Um tveimur klukkustundum eftir að útkall barst komust sjúkraflutningamenn til hópsins. Kom þá í ljós að annar skíðamaður var einnig lítilsháttar slasaður. Hlúð var að hinum slösuðu og búið um þau til flutnings. Voru þau flutt niður Brimnesdalinn og þar í sjúkrabíl sem flutti þau til Akureyrar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar gat ekki aðhafst á slysavettvangi vegna veðurskilyrða en hún var kominn til Ólafsfjarðar áður en flutningur á hinum slösuðu til byggða hófst.
Verkefnið gekk vel fyrir sig en aðstæður voru mjög krefjandi sökum úrkomu, snjóblindu og mikilar snjóflóðahættu á svæðinu. Á leið sinni á vettvang sáu viðbragðsaðilar hvar snjóflóð höfðu fallið á nokkrum stöðum í dalnum.
Mikil snjóflóðahætta er á Tröllaskaga og nálægum útivistarsvæðum til fjalla.
Lögreglan á Norðurlandi eystra greindi fyrst frá þessu ásamt meðfylgjandi myndum.