Snjóbretta- og Tónlistarhátíðin AK Extreme verður haldin dagana 7.–10. apríl  á Akureyri.  Hátíðin er haldin Hlíðarfjalli og í miðbæ Akureyrar  í  Gilinu og Sjallanum. Hápunktur AK Extreme er Big Jump/Gámastökks keppni Eimskips í Gilinu sem fram fer á laugardagskvöld kl. 21.00 en þar koma saman færustu snjóbrettamenn Íslands ásamt erlendum keppendum þar sem keppt verður um AK Extreme titilinn og hringinn. Nánari upplýsingar má að finna á heimasíðu hátíðarinnar ww.akx.is og á Facebooksíðu viðburðarins.

bwin5023