Fjallabyggð verður með opna smíðavelli fyrir 7-12 ára börn (árgangur 2010 – 2015) á tímabilinu 11.- 21. júlí á Siglufirði og í Ólafsfirði.
Smíðavellirnir verða opnir í tvær vikur, mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10:00-12:00 í Ólafsfirði og á Siglufirði sömu daga frá 13:00 – 15:00.
Börn sem sækja smíðavellina eru á ábyrgð foreldra og er frjálst að koma og fara á þeim tíma sem smíðavellir eru opnir. Börnin fá timbur og nagla á staðnum en þurfa sjálf að koma með hamar og sög.
Verkefnið er í umsjón yfirmanns vinnuskóla Fjallabyggðar.
Staðsetning:
Ólafsfjörður: Á sléttunni norðan við Ólafsveg, (bak við GRÆNU blokkina).
Siglufjörður: Á túninu við Mjölhúsið
Upplýsingar veitir Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri í síma 844 5819, rikey@fjallabyggd.is og Haukur Sigurðsson yfirmaður vinnuskóla í síma 863 1466, haukur@fjallabyggd.is