Slökkvilið Dalvíkur var kallað út um kvöldmatarleytið 5. desember síðastliðinn vegna elds í fjósi á bænum Brimnesi í Dalvíkurbyggð. Slökkvistarf gekk vel en litlu mátti muna að eldurinn næði að dreifa sér í hlöðu sem stendur við fjósið en það tókst að verja hana.

Slökkvilið óskaði eftir aðstoð frá Slökkvilið Akureyrar sem kom með mannskap og körfubíl. Einnig var óskað eftir skotbómulyftara frá verktaka í Dalvíkurbyggð til þess að rjúfa þakið og komast beint að eldinum.

Slökkvistarf tók í heildina um 10 tíma og lauk um 03:00 aðfaranótt laugardags. Á laugardagsmorgninum var Slökkviliðið svo aftur kallað út í fjósið þar sem eldur kom aftur upp út frá glæðum sem byrjuðu að dreifa úr sér en það gekk mjög vel að slökkva það. Slökkvistarf gekk almennt vel en ljóst er að ekki miklu mátti muna að það færi enn verr.