Siglufjarðarflugvöllur er skráður lendingarstaður og er einn af þeim sem ekki er í umsjón ISAVIA. Slökkvilið Fjallabyggðar hefur það hlutverk að sinna eftirliti við flugvöllinn, en lendingarleyfið var endurnýjað í lok síðasta árs.
Slökkvilið Fjallabyggðar endurnýjað nýlega vindpokana við flugvöllinn en þeir gegna mikilvægu hlutverki til að flugmenn geti áttað sig á vindstyrki á svæðinu. Tveir pokar eru við flugbrautina, að sunnanverðu og að norðanverðu.
