Það verður nóg um að vera í barnamenningu á Ljóðasetrinu á Siglufirði þessa vikuna. Á miðvikudaginn ætlar elsti árgangurinn af leikskólanum Leikskálum á Siglufirði að koma í heimsókn og búa til stórkostlega skúlptúra á lóðinni við setrið. Ýmiskonar hráefni verður notað við listaverkasmíðina eins og timbur, járn, plast, gólfflísar, bækur og fleira. Frá þessu var greint á samfélagsmiðlum Ljóðaseturs Íslands.
Frá kl. 16.00 á miðvikudaginn verður svo sýning á listasmíði dagsins og verður listafólkið á staðnum til að útskýra verkin sín.
Á fimmtudeginn kl. 16.00 verða svo flutt hin ýmsu barnaljóð í Ljóðasetrinu og eru börn á öllum aldri boðin velkomin að hlýða á.
Kjörbúðin býður börnunum upp á hressingu.