Skráningar eru byrjaðar í Vinnuskóla Skagafjarðar sem verður starfræktur frá 6. júní til 11. ágúst. Skólinn er fyrir börn á aldrinum 13-16 ára, fædd 2001-2004. Skráningu þarf að vera lokið fyrir 25. maí næstkomandi. Yngstu krakkarnir starfa í 2 vikur, þau næstyngstu, 14 ára, í 4 vikur, 15 ára í 6 vikur og 16 ára í 8 vikur.